3.12.2008 | 21:08
"Seint koma sumir... en koma þó !"
..eins og hann Stefán Grímur sagði svo oft á VMA árunum...
En góða kvöldið...
Það hefur margt á daga mína drifið í borginni síðan síðasta bloggi, sem kannski betur fer þar sem það fer að styttast í mánuðina 2 þar á bænum... En ég hef ekkert farið heim nema í október og ekkert séð Brí síðan :S Ég veit nú ekki hvað ég ætti að segja frásögu færandi af þessum tíma.
En ég er semsagt ekki búin að fara í skólan í heila viku en fer í próf í fyrramálið. Ekki búin að kíkja í bók enda engin bók til að kíkja í. Ég skammast mín nú pínu fyrir að segja það, en ég vaknaði í fyrsta skipti í morgun fyrir 8 í heila viku, og ég var næstumþví búin að beila á því.. En ég er semsagt bara bún að vera á fullu að brasa, og í 700 % vinnu á facebook !! Ef ég fengi tímakaup fyrir facebook þá væri ég orðin milli...milli-jarðarmæringur.. semsagt geimfari.. Ok ! það fattaði þennan ENGIN !
Ég fékk þá veiru síðasta miðvikudag að fara heim og ég var bara Á LEIÐINNI HEIM.. ætlaði heim ÁÐAN.. sem betur fer komst ég ekki og sparaði mér þar með hellings pening sem ég eyddi á 09 í annað hehe...
Fór á jólahlaðborð hjá Miðbergi og laugardaginn og það var barasta fínt. Fínasti matur og góð stemning... =) Svo löbbuðum við nokkur í einvherju rugli niðrí bæ frá Fram heimilinu. Jebb !! Hitastigið var -10°C og skórnir voru háhælaðir og opnir.. meira að segja glænýjir. ! Var reyndar að drepast í löppunum og göngunni var heldur ekkert lokið sko.. löbbuðum upp og niður og niður og upp shit.. fór reyndar frekar snemma heim ..gat ekki gengið meira .. ég sver það .. ég er enn að drepast í löppunum.. er búin að vera að drepast e-ð svo í hælunum og ég skil ekkert í þessu.. kíkti e-ð á kvikyndið og ´þá var ég bara ekki frá því að ég væri með marblett á hælnum, e-ð bogið við þetta.
En það er vinnu helgi hjá mér :s Búið að kvíða fyrir þessari síðan síðustu lauk, og ekki skánaði það í dag þegar ég hringdi og fékk að vita vaktirnar.. ég sem er yfirleitt bara stubba eða 6 tíma og svona.. en svo alltíeinu núna á ég tvær heilar vaktir.. lau kvöld og sun morgun.. gangi mér vel að vakna á Sun morgun .. og það til að vera til 4 í þessu æði ! EEen ég veit,. money money .. ekki veitir af ;)
En ég ætla að segja þetta gott í bili.. þetta er nú búið að taka tímana tvenna herna.. ef ekki þrenna hehe.. Hafið það gott og verið góð við hvort annað =)
-KamillaMjöllKarlsHaraldsdóttir
-Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.10.2008 | 13:20
Heimferðin ...
Góðan daginn.
Flest ykkar vita nú að ég fór rándýra ferð í Ólafsfjörðin góða fyrir helgina og var þar yfir helgina. Átti bókað flug 17:30 á miðvikudag eftir vinnu. Ég fékk að fara aðeins fyrr úr vinnunni en þó var fluginu frestað um hálftíma. Sunna keyrði mig á völlin vel áður en ég átti að mæta og síðan beið ég. Ég get ekki líst þessarri tilfinningu sem ég hafði í maganum að vera að fara heim. Ekki verið þar í tvo mánuði, og hef aldrei verið svo lengi frá Ólafsfiðrinum góða.
Flugið gekk svosem alveg ágætlega. svoltil ókyrrð en ekkert sem maður lifði ekki af. Mamma og pabbi ætlaðuðu að ná í mig á flugvöllinn og þegar ég labbaði inn í flugstöðina sá ég bara Bríet Brá
hennti frá mér tölvunni og draslinu til að knúsa þessa elsku.
Hún hafði semsagt fengið að fara með ömmu sinni og afa sínum til Akureyrar, þvílík gella ;) Ég var ótrúlega spennt þegar við keyrðum heim og fannst leiðin heim alveg ótrúlega löng.
Við móðir mín fórum svo með Bríeti heim til sín og heilsuðum uppá fjölskylduna í Ólafsvegi 28.
Dagarnir heima voru svo ansi ljúfir. Kíkti aðeins á Esther á miðvukdagskvöldinu og fór svo í heimsókn í Skiltagerðina á fimmtudagsmorgun, ótrúlega gaman að sjá hann Tómas, enda er hann alltaf svo mikið yndi =) Svo var maður bara að brasa ýmislegt og svona.. bauð mér í mat hjá Gulla og Ásu á fimmtudagskvöldinu afþví það var ekkert spes matur heima... En maturinn hjá Ásu var fínn :D hehe...
Á föstudaginn þurfti ég að brasa ýmislegt, þreyf bílinn fyrir pabba og svo fórum við Einar Ingi í sund. Hann var þvílíkt góður og svaka gaman hjá okkur. Nóg orka í honum, allavega þangað til hann settist niður. Fórum á sjoppuna svona í "leiðinni" heim og hann fékk ís. Ég vissi ekki fyrr en krakkinn var sofnaður á borðinu og ísinn lá á borðinu. Bara krúttlegur.
Svo hitti ég aðeins Kötu, tókum smá rúnnt og vorum næstumþví drepnar úr viðbregðu haha það var bara fyndið "ég sný við og keyri á manninn" heheh þvílíkur hálfviti :D
Vildi svo ekki betur til en um nóttina á föst-lau fékk ég þessa sveru ælupesti. Ég hélt að ég væri að deyja sko.. svaf ekki neitt og var orðin svo mattlaus að ég stóð ekki í fæturnar. En þetta tók fljótt yfir og ég var að jafna mig á laugardagskvöldinu. Fór út strax á sunnudaginn því ég ætlaði sko ekki að eyða þessu fríi mínu í ælupesti. Fór hring með Gulla og svo í heimsókn til þeirra eftir Sunnudagaskólann og var að púsla með Einari Inga og kubba og svona, svaka fjör:)
Mánudaginn bauð ég sé Esther og Orra í pönnukökur, en fór og keypti betty brownies ef pönnukökurnar myndu klikka. Sem þær gerðu.. þangað til að Esther kom og bjargaði mér hehehe... Svo var maður bara að taka sig til og gleymdi helmingnum.. og keyrði svo inneftir, eftir að hafa kvatt fjölsk mína með tár í augunum. Bríet vissi sko alveg að frænka sín var að fara þar sem hún tók frænkusýkina á þetta seinnipartinn í gær, og frænkunni fannst það bara æðislegt 
Svo keyrði ég inneftir eða löllaði inneftir. Ákvað að hafa góðan tíma svo ég þyrfti ekkert að flýta mér en skyggnið var 0 sá ekki milli sika á milli Ólafsfjarðar og Akureyrar enda var ég góðan einn og hálfan tíma á leiðinni. Aldrei verið svona lengi á milli ! Enda er þetta tvöfalldur tími. En þetta hafðist og ég kvaddi pabba minn og Guðný sem komu með á flugv og svo var bara ekki aftur snúið.
Við krössuðum á Reykjavíkurflugvöll 21:15 og þá var bara að koma sér heim í háttinn. Þetta voru erfið skref aftur í borgina, og það töluvert erfiðari en ég hafði látið mér detta í hug. En svona er þetta. Það sparkar þá bara í rassgatið á manni að klára þetta djö nám og fara að lifa lífinu.
En ég ætla eki að væla í þessu bloggi. Ætla að hafa þetta gott í bili.
Svo átti elskuleg móðursystir mín Guðrún afmæli á föstudaginn síðasta, og hún ástkær móðir mín í dag... leiðinlegt að geta ekki hjálpað þeim með kökuna heima :D
Kamilla Mjöll
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.10.2008 | 17:14
Jiii minn eini dúdda mía..
..eins og Gulli sagði svo oft í gamla daga ;)
Ég ákvað að googla sjálfri mér um daginn.. og fór þá inná gamla bloggið á centralinu, sem ég hef ekki farið inná síðan ég byrjaði að blogga hér. En ég er að segja ykkur að svoan gömul blogg eru gimsteinar. Var að lesa e-ð af þessu og mörg lög sem maður var bara jáááá.. geðveikt ! og myndirnar, bara fyndið.
Ég fékk sent video af Bríeti Brá á sunnudagskvöld, eða mánudagskvöld. Við þurfum ekkert að ræða það, en við Sunna vorum í hláturskasti yfir því og svo langaði mig bara að grenja úr söknuði sko. Þegar ég sá hana síðast tók hún 11 skref. En í þessu videoi er hún hlaupandi um allt hús með dótabílin Einars Inga á undan sér bara krúttlegt.
Síðan fékk ég ananð video, þar sem amma hennar rétti henni kexköku eða e-ð og hun tók hana og fór á röltið, sleppti svo kökunni á gólfið og leit í myndavélina og það var svo geðveikt fyndin svipur á henni.. *úúps.. ég ætla ekki að ná í þetta skooo* svipur. <3
Í gær fékk ég svo annað myndband. Þar sem hún var á röltinu um húsið heima hjá sér og stoppaði til að ná í e-ð og það er bara fyndið að sjá hverni þetta rassgat hreyfir sig oooh elskana.
Svo talaði ég við Einar í síma í gær hann er svo mikill yndlingur drengurinn. Svo var mamma að leyfa Bríeti að heyra röddina mína og ég sagði svo "viltu kyssa frænku" og mamma sprakk úr hlátri.. þá var hún að gera kyssuna sína..
langaði bara að taka hoppflug heim og knúsa þessi rassgöt :*
En það er nú vonandi bara vika þangað til ég get knúsað þau og kysst ..
Á morgun er ég að fara að byrja að vinna á Seljarhlíð. Var boðin sú vinna eftir að ég fór að vinna í frístund og ákvað að taka henni bara, þetta er ekki það mikið, aðra hverja helgi og oft bara stubbar á morgnanna og stundum heilar kvöldvaktir. Maður verður jú að reyna að halda sér á floti í *bannorð*
Svo er ég með eitt annað á prjónunum en ég ætla ekkert að pósta því hérna inn á bloggið fyrr en það er komið á hreynt.
Annars er Októberfest.. aðaldæmið í kvöld og á morgun. ég fór alveg óvart í fyrra.. með Sunnu og það var mjög gaman, grínast með hvað maður hitti alla eða ? þannig það var ákveðið í fyrra að fara aftur að ári.. ég er búin að hlakka til síðan við komum hingað suður.. og þá er ég auðvitað að fara að mæta í vinnu kl 8 í fyrramálið. Ætla samt að kíkja aðeins, maður er ekki komin það seint heim af þessum viðburði þar sem það fara síðan allir niðrí bæ. Ég passa á bænum núna eins og síðustu helgi hehe. Þvílíkur lúði.
Annars er ég bara fín búin að vera í viðbeininu, farin að kvíða smá fyrir kúlunni sem kemur til með að koma, en maður hefur jú harkað þetta af sér áður ;)
Hvað getur maður sagt annað en ást ást 
Jæja.. segi þetta gott í bili.. góða helgi
-KamillaMjöllHaraldsdóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.10.2008 | 15:09
"Brennt barn forðast eldin! ... eftir 8 ára !"
Góðan daginn.
Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér síðustu viku. Skiltagerðin kom á sunnudaginn og það var bara næs að sjá framaní Esther þó það væri stutt síðan ég sá hana síðast.
Mánudaginn var svo skóli og vinna. Fórum með krakkan niðrí bæ að gefa öndunum rosa stuð. Í frábæru veðri. Enda leiddist þeim ekki.
Á þriðjudaginn var skóli eins og venjulega og við borðuðum saman í hádeginu við stöllur, ég, Sunna og Esther. Eftir skóla þurftum við Sunna svo aðeins að kíkja í búðir og fórum svo til þeirra þar sem þau voru að fara.. með afmælisgjöf til Officer Esther protester. Síðan gistaði ég hjá Sunnu vooða næs allt saman.
Svo var skóli vinna og námskeið á miðvikudaginn. Var semsagt á grunnfræðslunámskeiði ítr. Var til e-ð að ganga 9 minnir mig og Sunna kom og náaði í mig og við fórum svo heim til hennar og ætluðum að hafa brúnnkustund en þá var kl orðin svo hroðalega mikið að við fórum bara ða leggja okkur.
Brúnnkustundin var hinsvegar tekin í gær. Þ.e. eftir 10 klst skóladag sem ég hélt að myndi AAALDREI taka enda, og seinna kvöld námskeiðsins sem var reydnar mjög skemmtilegt og fræðandi. Það kom hjúkrúnarfræðingur, sem ég man ekki alveg hvað heitir. En hún vissi sko alveg um hvað hún var að tala. Kom með marga góða punkta. T.d. Allir þekkja málsháttinn "Brennt barn forðast eldinn" en hun kom með viðbótina "...eftir 8 ára!" Sem er alveg óóótrúlega true ! þar sem yngri börn hafa ekki alveg vitið í að fatta svona hluti.
Svo kom hún með ótrúlega marga góða punkta sem maður pælir annars ekkert í.
Eftir námskeiðið fór ég svo heim og vitir menn, það var farið að snjóa.. !!! Barababbabaaaabaaaaamm I'm lovin'it ! (mcdonals stefið) Var alveg að fýla þettta í ræmur, fór svo út og röllti hálfa leið niðrí mjódd að hitta Sunnu :) Við tókum brúnnkustundina sem gekk e-ð voða illa. Ég er allavega ekkert elgtönuð neitt.
En seinnipartinn er starfsmanna fundur í Denna, svo ætlum við að borða saman og svo er party. Sé til hversu langt maður kemst hehe..
Svo eru mamma og pabbi að koma í borgina í kvöld. Pabbi ætlar að ná seinasta deginum af sjávarútvegssýningunni og svo er auðvitað afmæli hjá engum öðrum en Þorvaldi Pálmasyni nokkrum. Verður eflaust mikið gaman og mikið fjör. Allavega held ég að það verði gaman =)
Október er gengin í garð.. eigum við e-ð að ræða afmælin í okt?
Byrjaði auðvitað á henni Anney frænku minni sem átti afmæli 2 okt. eða í gær..
Svo á Officer Esther protester afmæli í dag.. 35 ára skvísan ;) Engin aldur á henni ;)
Ég ætla að segja þetta gott og fara út í blíðuna og þetta hvíta.. love it.. Hafið það gott:*
p.s stjörnuspain min á mbl í dag er natturelga SVO mikil snilld:
Þú hefur eytt mestum frítíma með sömu manneskjunni og þið hafið þróað ykkar eigin húmor og tungumál. Sambandið þroskast enn meira með áskorun.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.9.2008 | 21:04
níutíu og fimm prósent !
Góðan og blessaðan.
Veit svosem ekki alveg hvað ég á að segja í þessu bloggi. Í hreynskilni sagt er þetta afsökun til að þurfa ekki að laga til.
- Ég reif mig á fætur í morgun. Það var erfitt. Kennarinn veikur þannig ég beið bara. Nennti ekki að hafa fyrir því að fara heim í korter eða e-ð. Það tekur jú tímana tvenna að komast þangað ! En var líka bara búin um hádegið í staðin ;)
- Var skellt á okkur skyndiprófi. Það var rosalegt, fór óvart inná myschool áðan og sá það var komin einkun, kíkti á hana með í brókunum yfir því og haldiði ða kella hafi ekki nælt sér í 9 fokking 5 !!! Ekkert lítil hamingjan með það !
- Esther kom aftur í gær og við borðuðum allar saman í hádeginu í dag og svo brölluðum við aðeins því my teacher var syg.
- Ætlaði að vera súper dugleg að laga til í herb mínu í dag þar sem það var óóógeðlsega mikill þvottur og svona á gólfunum. Allt sem ég hef afrekað hingað til er að skella í eina vél.
Það verður svo nóg af afmælum á næstunni. Erum að fara í afmæli á Laugardaginn í Marteinslauginni hjá Ástu sætu.. sem er að verða 3 ára.. og á Sunnudaginn hjá honum Aroni Breka sem var 10 ára í gær :)
Svo á Anney systir mömmu afmæli 2. okt, Esther 3. okt, Gamla settið á efri hæðinni 7 og 8, Sunna 11, Guðrún 17, mamma 21 og Gretar 29. Ef það vantar e-ð þarna inní endilega latið mig bara vita.. er ekki sú skarpasta þó ég muni þetta allt :D
EN hér með auglýsi ég eftir myndalegum karlmanni, vöðvastæltum og tönuðum. Helst sjúkranuddari (en má alveg vera erótískur nuddari) Aðrir eiginleikar þurfa að vera... (í stórum dráttum þó)
Einstakur áhugi á hreynum þvotti, samanbroti og þess háttar.
Snyrtipinni sem sér um að heimilið sé hreynt.
Nauðsynlegt að hann kunni á Auto Cad.
6 pakki skilirði !
Hárlitur að eigin vali, og engin skilyrði um skóstærð.
Þarf að vera sæmilega hár til lofstins og ókítlin !
Hárgreyðslumaður mikill og hefur einstaka ánægju af því að slétta hár á úfum og pirruðum kvennkostinum.
og hér er listinn góði hveeeergi nærri tæmdur !
Ef þið vitið hvar þessi einstaki maður er geymdur þá endilega plöggið þetta;)
...og ef ég fæ ekki komment frá honum Karli Haraldi verð ég mjög vonsvikin !
En ég ætla að fara ða hengja uppúr vélinni. Verið svo dugleg að kvitta.
Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
21.9.2008 | 15:28
To night will be the night that I will fall for you over again (8)
Góðan daginn.
Lífið gengur sinn vana gang hér í borginni. Er farið að ganga aðeins betur í skólanum enda var ég svo ógeðlsega dugleg að læra á miðvikudaginn, og hér eftir ætla ég í aukatíma um leið og það er e-ð farið að ganga illa. Ég einsetti mér það jú að massa skólann.
Esther kom á fimmtudaginn seinnipart.. og við kíktum aðeins í kringluna stöllurnar þrjá, Sunna Esther og ég.. borðuðum svo saman og höfðum gaman :) Á föstudaginn ætluðum við Stera svo að fara í bakarí og svona áður en ég færi í skólann og brasa aðeins og við féllum næstumþví á tíma, þetta var frekar fyndið .. við góðar saman í umferðinni í reykjavíkinni hehehe.
Ég fór svo í skólann og var frekar stressuð. Þar sem ég var að fara að "skila" baðherbergisverkefninu og áttum að kynna það fyrir bekknum og lýsa alveg fyrir þeim hvernig maður hafði hugsað þetta og afhverju svona en ekki hinsegin. Mér gekk mjög vel bara myndi ég segja.
Svo var bara fokk með Steru yfir daginn. kíktum í kringluna aftur í smá og fórum svo á Pizza Hut.. og vorum reyndar að drepast í maganum eftir það. En við fórum svo bara heim til Sun í rólegheitin og byðum eftir henni úr vinnunni og fórum svo í bæinn.
Í gær fékk ég mér svo að borða með sunnu þegar hún var búin að vinna og það var sko ekkert minna en Domios surprise... og mig langar sko í aðra í dag.. ÓGEÐLSEGA góð.. þvílíkur sukkari sem maður er.
En ég ætlaði svo að reyna að komast heim helgina 18-19 okt, því ég er í fríi 17 og 20.. var að vona að ég gæti farið á fimmtudagskvöldið þann 16 og komið aftur á mánudeginum seinnipartinn. Náð að knúsa Bríeti Brá og Einar Inga og hafa það gott með öllu fólkinu. en svo er Sunna að fara heim þann 20 og ætlar að vera í einhvern tíma. Veit ekki alveg hvernig ég á að fara að því.
En Svo er ég að byrja að vinna á morgun á frístundaheimili Denna dæmalausa í Seljaskóla. Vinn eftir mat tvo daga í viku frá 1-5 og vona svo sannarlega að ég verði ánægð með þetta. Svo eru stundum námskeið frá 5-7. Er reyndar sóðalega stressuð en þetta hlýtur að reddast allt. Einn góður vinur minn trúir allavega að allt reddist og ég einset mér að trúa því líka.
En ég ætla að fara að græja mig smá.. er að fara til Sunnu og versla :) Ætla svo að hafa kósý kvöld örugglega bara. Ætlaði nú að þvo og taka til í dag en ekki gert handtak. Duglega ég!
En endilega verið dugleg að kvitta.
Kamilla Mjöll Haraldsdóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.9.2008 | 18:44
ÉG KANN EKKI Á KLUKKU !!!
Góðan daginn...
Blogg dragkóngur íslands DJOK ! Ætlaði að blogga í gær en af einhverjum óskiljanlegum ástæðum tókst það ekki.
Ég var í borgarfirðinum um helgina. Það var fínt, Sigrún hans Steina átti afmæli og var haldin þessi svaka svaka veisla í því tilefni. Mjög flott alltsaman og rosa fjör í veislunni. Bríet Brá átti þar klárlega stærsta leikinn. En ég sat neflinglega með kökudiskin á hnjánum og hun var búin að standa upp við hnéin á mér og var að betla.. svo datt greyið litla á rassin og ég var svo hrædd um að hun myndi fara á hausinn að ég beigði mig til að grípa í hana, en vildi nú ekki betur til en það að ég endaði með rjóma á brjósunum. Við erum að tala um að ég hef sjaldan sé Gulla hlægja svona mikið.
Svo hjálpaði maður til að vaska upp og það tók nú tímana tvenna, ekkert lítið leirtau eftir svona stóra veislu. En eftir uppvaskið var síðan haldið í réttirnar með gömlu. Það var reyndar sóðalega kalt þó ég væri vel klædd en tærnar á mér stóðu fyrir sínu og frusu í hel, eins og venjulega. Ég fór svo bara heim á undan sveiktakonunni mömmu minni og ég segi bara sem betur fer. Því hun kom heim kl 10 eða e-ð álíka. þá var ég búin að vera heima í tvo tíma hehe
Sunnudagurinn var svo tekin rólega bara. Ég hélt mömmu til að verða eitt í borgarfirðinum og fór svo heim með ömmu og co seinnipartinn. Rosa næs helgi og vil ég bara þakka fyrir mig :*
En lífið gengur sinn vana gang. Skóli og Sunna ! Ekki mikið meira.
En ég get þó sagt ykkur það að í dag gerðist nokkuð merkilegt. Mér neflinlega gekk bara mjög vel í TTI og TÞT og sé ég bara fram á að geta klárað Baðherbergið með töluverðri aukavinnu þó.
Ég og Sunna vorum að plana daginn í hádeginu og það var helling sem við þurftum að gera, og ég e-ð "æji getum við ekki bara gert það í kringlunni" og hún svona svarar því ekkert.. og þá fatta ég alltí einu .. "neeei.. það er bara miðvikudagur" og Sunna bara já :S Ég hélt neflinlega að það væri fimmtudagur og þá er náttúrlega opið svo lengi í kringlunni. En svo lít ég á sunnu eftir smá stund.. "ÞAÐ ER ÞRIÐJUDAGUR!" ein ekkert lítið rugluð í dögunum, og ég var að hlægja að því að maður sé svona ruglaður því það er engin dagur eins hjá manni.
En við systur fara að gefa blóð hefur ekki komið neitt slæmt útur prufunum okkar þar sem við höfum ekki fengið bréf og tíminn er liðin. Hefðum reyndar mátt fara í gær, en við ætlum að fara saman og það eru nú ekki allir dagar í vikunni sem við komumst báðar. Reyndar fæstir. Vorum búnar að plana að fara á fimmtudaginn, ákváðum að breyta því og fara á morgun. En þá kemst Sunna ekki. Vona að þetta eigi ekki eftir að ganga svona lengi hehe. Í síðasta lagi á mánudaginn segi ég. Vil reyndar dríbba í þessu því ég er svo hrædd um að þetta gleymist bara eða "dagi uppi".
En svo er SterZ að koma í borgina á fimmtudagseftirmiðdegi. Spurning hvort maður sjái það gerpi e-ð ;) Það er mikil pressa.. mikil pressa :D
Er að hugsa um að fara í "aukatíma" á laugardaginn og gera allt mitt fullkomið. En ég efast nú um að ég eigi eftir að nenna því. Ætla frekar að reyna að ná mér í auto CAD í kvöld svo ég geti notað "dauðu tímana" í þetta.. Svoltið annað að kveikja bara á tölvunni og græja þetta en að taka strætó í hálftíma og labba í 10 min, labba svo aftur í 10 min og taka strætó í hálftíma. Auðvelt reiknisdæmi þetta.
Annars langar mig bara að óska henni Ingu Rúnu Húnu til hamingju með afmælið, 19 ára í dag skvísan.
Nóg af afmælum framundan og fáránlega mörg í október. Úff Úff.
En ég ætla að hafa þetta gott í bili, endinlega kvittið og ég skal svo update ykkur í fréttum fljótlega.
-Kamilla Mjöll Haraldsdóttir, námshestur 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.9.2008 | 08:09
Innbrot í Seljahverfi !!
|
Íbúar í Seljahverfi lýsa áhyggjum af innbrotum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2008 | 18:03
"nei það var nú reyndar ekki alveg svona"
Góðan daginn kæru lesendur.
Maður er ekki sá sterkasti í blogginu þegar maður er svona námsmaður með glænýja og flotta tölvu með engu neti. Var að verða snargeðveik á því í gær að reyna að græja netið í tölvuna en það bara GEKK EKKI !!!! Hér með auglýsi ég eftir fjall myndalegum herramanni til að laga netið fyrir mig :) Einhver sjálfboðaaðili ?
Annars hefur margt á daga mína drifið, Eyddi dagstund með henni Ester Hörpu á fimmtudaginn sem var mjög gaman, hitti hana svo rosa sjaldan, en það kannski breytist :) Við náðum í tölvuna mína sem er btw geðveikt flott. Kann reyndar ekki shit á hana.
Á föstudaginn neyddist ég til að skrópa í Innréttingu, eða ég hélt það og var bara búin að sætta mig við það, þegar ég fékk mail frá Ragnheiði og tíminn féll niður. UUU.. snilld ! ég samt er að skíta á mig í þessum áfanga og öllum sem hún kennir. Svo mega menn bara geta í eyðurnar hvort þar eru mín eigin ágæti að klikka eða kennarans !!! Get nú sagt ykkur að ég veit um tvær sem skráðu sig úr þessum áfanga útaf henni !!! Og veit lika um annan sem finnst kennslan ekki upp á marga fiska !
En á föstudaginn.. það var frekar fyndið.. Ég hringdi í Sunnu og stóð fyrir framann ískápinn, og um leið og hún svaraði sagði hun "hvað ætlarðu að fá þér úr ískápnum" óg ég bara uuu ekkert ég var að loka honum ! "ok opnaðu þá fyrir mér" ég sem hélt að hún væri rétt að klára í skólanum og á leiðinni í ræktina. En við svo brösuðum aðeins og brunuðum í Mosó til Sigrúnar frænku og co þar sem við vorum að fara með þeim norður í Ytri Vík. Ég var enganvegin stemmd í bíltúr300 , 400 ,500 km eða hvaaað sem er langt þangað norður. Finnst alltaf eins og það séu 700 km
Helginni eyddum við í faðmi stórfjöskyldunnar í Ytri víkinni. Var reyndar ekkert lítið skrítið að sjá hana Bríet Brá með tennur :D illa litlar og krúttilegar. Svo er jafnvægið hjá skvísunni orðið þvílíkt mikið, og hun farin að labba um allt. En er nú pínu gunga að manni finnst og vill aldrei labba nema einhver haldi í hana, en það kemur þú alveg fyrir og pabbi plataði hana til að labba doltið í hrísey og tók hún 11 skref þá .. og það mesta sem e´g hef séð hana gera. Mér finnst hún orðin svo stór. Verður hrikalegt að sjá hana bara einu sinni, kannski 2 .. 3 ef ég verð heppin fram AÐ JOLUM !!! Hef náttúrlega ekki séð Einar Inga í háa herrans tíð og hann man örugglega ekkert hver ég er þessi elsku litli pungur :)
Ég skeit uppá bak í dag ! Var ekki búin að útvega mér mæli/kvarðastiku þannig ég hafði ekkert að gera í skólanum. Gjörsamlega vonlaust dæmi. En nú er ég komin með mælistikuna í hendurnar og nú vantar mig bara auto cad ið í tölvuna. Þá þurfið þið ekkert að spurja um mig meira fram að jólum. Eða fram að desember prófunum allavega.
Ég er orðin ógeðlsega stressuð. Reyndar að skíta á mig í þessum TTI (innrétting) og TÞT (þrívídd) áföngum. En reyndar að rúuuussta TTC (tölvuteikning) sem er samt í sama forriti og innrétting. Hann Hannes kennari er bara algjör snilli sem kennir tölvuteikningu.
En á morgun verður brotið blað í lífi mínu. Ætla reyndar ekki að deila því með ykkur því ég veit að sumum ungum konum finnst þetta algjör hrillingur og ég er meðal þeirra ;) gooood GOD !!! hehehe
Jæja, verð að næra mig.
-Kamilla Mjöll KarlsHaraldsdóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.8.2008 | 20:09
6 skrefa fjarðlægð !
Bleeeee ...
Hér í borginni er litla sveitastelpan að reyna að aðlagast. Er ekki beint þessi borgartýpa þannig þetta tekur sennilega töluverðan tíma.
Síðustu helgi fórum við Sunna á Sander Kleineberg. Var búin að segja frá því. Svo á Laugardaginn fórum við niðrí bæ þar sem manningarnótt var nottlega. Rölltuðum bara um og skoðuðum, þó aðallega hitt kynið ;) Nei djók! En um kvöldið fórum við á tónleikana á Miklatúni. Fórum svo bara við á video leigunni og settum ræmu í áður en við löggðum hausinn á koddann ;)
Fórum svo í bíó á sunnudagskvöldinu á The Rocker. Mar er alltaf í bíó í boði NOVA ! Frekar næs.
Svo fór ég í skólann bara á mánudaginn og það gekk bara vel. Fór samt abra í einn tíma og var stutt. Þriðjudagurinn var svo langur skóladagur. Var komin með kvef sem ég hef þjáðst af síðan hehe. Miðvikudaginn fór ég í fyrsta skipti í fjarvíddar og fríhendisteikningu, lýst reyndar voða vel á það :) Svo gekk skólavikan bara á endann og Sunna fékk íbúðina á fimmtudaginn.
Við fórum þá í IKEA og ég hélt reyndar að Sunna myndi kaupa upp lagerinn þar. Svo fórum við aðeins á the English Pub að sjá e-ð tríó sem við sáum á menningarnótt. Uuuu.. Ingó minn er nú betri með gítarinn og raddböndin einn síns liðs.
En svo fór ég ekkert í skólann fyrr en eftir matinn í gær. Var alveg heil tussuleg, eða bara lasin. Veðrið var horbjóðður ! ræða það. Svona veður er 1x á ári heima hehe. :)
En ég er búin að fara hamförum hérna í dag. Áttaði mig á því að ég hef hummað það fram af mér síðan við komum að þvo þvottinn ! Þannig í dag var dagurinn. Fyrsta þvottavélin. Ég orðin 19 ára. 1 mánaða og 7 daga gömul. Setti í þrjú kvikindi og lagaði til og á enn helling eftir ;) En ég var nú bara ánægð með árangur dagsins.
Sunna kom svo hingað og eldaði LAX handa okkur. Hann var góður en ég gat ekki klárað. Svo er það bara DORITOS og dvd í kvöld.
Svo verð ég bara að vera í skólanum alla vikuna örugglega til að komast norður næstu helgi. Næ örugglega ekkert föstudagstímanum í Innréttingum, og þar sem ég er að fara að massa skólann þá verð ég að taka þetta af alvöru :) Er komin með nýjar hugmyndir um framtíðin sem ég ætla ekki að pósta því það verður orðið gamallt á morgun ;)
En ég lennti í svo hrikalega fyndnu atviki um daginn í skólanum. Það var ein að spurja mig hvaðan ég væri aftur og ég svara því. Svo segir kona við hliðina á mér sem heitir Soffía -"ég átti einu sinni vinkonu sem flutti til ólafsfjarðar og aldrei heyrðist meira af henni." og ég bara nuuunu.. og þá sagði hun -"þú þekkir hana kannski hún heitir Alda" og ég bara jájá heitir hún e-ð meira .. "já hún heitir Alda María, þekkirðu hana" og ég sprakk úr hlátri "tjaahh kannast e-ð aðeins við hana hún er mamma mín!" hehehehehe... Freeeekar fyndið !
Sakna Bríetar svo sjúkt. Ræða það e-ð ? Hún er komin með tönn og farin að taka skref. Tók tvö skref um daginn og pabbi var ekkert smá stolltur þegar hann var að segja mér það :) Svo tók hún 6 skref í gær. Mamma sendi Sunnu mynd þar sem hún stóð alveg sjálf og var e-ð að reyna að labba var reyndar eins og storkur hehehe. Hlakka svo endalaust mikið til að knúsa þetta litla rassgat :* Hef aldrei verið svona lengi frá henni síðan hún fæddist :( Búin að vera hér í tvær vikur ! heheh !
Ég kýs reyndar að trúa því að hún sé svona dugleg að labba svo hun geti farið að rölta til frænkna sinna í borgina :D Hehehe...
Við frænkur
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 17042
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar










